Elding býður upp á páskaeggjaleit í Viðey laugardaginn 28. mars í góðu samstarfi við sælgætisgerðina Freyju, Viðeyjarstofu og Borgarsögusafn Reykjavíkur. Um er að ræða skemmtilegan leik í fallegri náttúru sem öll fjölskyldan ætti að hafa gaman af. Leikurinn gengur út á það að finna sem flest lítil páskaegg frá Freyju, en einnig verða nokkrir stærri vinningar fyrir þá sem finna sérstaklega merkt egg.
Páskaeggjaleitin verður ræst kl. 13:30 við Viðeyjarstofu en siglt verður frá Skarfabakka kl. 13.15. Þátttakendur geta að sjálfsögðu slegist í hópinn síðar, en leikurinn gengur þó út á þá meginreglu að „fyrstur kemur, fyrstur fær“ en þó þannig að hófs sé gætt svo sem flestir fái egg. Afmörkuð verða sérstök leitarsvæði, þar á meða eitt fyrir yngri kynslóðina (6 ára og yngri).
Í Viðeyjarstofu verður hægt að kaupa sér ljúffenga hressingu fyrir eða eftir leitina og þar er gott að setjast inn eftir útiveruna. Fyrir þá sem vilja er nestisaðstaða á bak við Viðeyjarstofu. Þá eru einnig skemmtilegar gönguleiðir um Viðey fyrir þá gesti sem vilja njóta frekari útiveru og skoða fjölbreytt útilistaverkin á eyjunni.
Viðeyjarferjan siglir samkvæmt vetraráætlun um helgar.
Brottfarir frá Skarfabakka til Viðeyjar
13:15, 14:15 og 15:15.
Brottfarir frá Viðey til Skarfabakka
13:30, 14:30, 15:30 og 16:30.
Ekkert þátttökugjald er í Páskaeggjaleitinni en gestir greiða ferjutoll
- Fullorðnir 1100 kr.
– Börn 7–15 ára 550 kr.*
– Börn 0–6 ára 0 kr.*
*í fylgd með fullorðnum
Mælst er til þess að þátttakendur skrái sig til leiks með því að bóka far með ferjunni. Frekari upplýsingar veitir starfsfólk Eldingar í síma 519 5000 eða með tölvupósti á elding@elding.is.