Sorphirðan aðeins á eftir áætlun

Umhverfi

""

Sorphirða Reykjavíkurborgar er enn aðeins á eftir áætlun við að hreinsa burt mikið sorpmagn eftir jólin.

Sorphirðan var að störfum í Vesturbæ í gær og ætti Vesturbær austur að Lækjargötu að klárast í dag. Þá var ætlunin að hefja sorphreinsun í Miðborginni og ætti því verki að vera lokið á morgun þ.e. Lækjargata að Nóatúni. Eftir það verður sorp hirt í hverfi 3 í Austurborginni, þ.e. Nóatúni – Holtavegi / Kringlumýrarbraut – Grensásvegi. Starfsfólk sorphirðunnar er á fullu við að vinna upp tapaðan tíma en er ennþá aðeins á eftir samkvæmt sorphirðudagatalinu.

Við minnum íbúa á að auðvelda starfsfólki sorphirðunnar vinnuna með því að moka vel frá sorpílátum og gera aðgengi að þeim eins auðvelt og mögulegt er í ófærðinni. Það er fyrst og fremst þung færð í borginni sem tefur sorphirðuna sem gerir sitt besta við erfiðar aðstæður.