Sólskinsdeildin á sumargötum í Reykjavík

Umhverfi Skóli og frístund

""

Sumargötur í Reykjavík voru opnaðar formlega í dag þegar Skólavörðurstíg frá Bergstaðarstræti, Laugavegi frá Vatnsstíg að Bankastræti og Pósthússtræti var breytt í göngugötur. 

Sumargöturnar verða fyrir gangandi og hjólandi umferð til 15. september  og lokaðar bílaumferð nema á milli kl. 8 og 11 á virkum dögum. Þær eru liður í því að skapa fjölskrúðugt mannlíf í miðborginni.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði sumargöturnar í dag ásamt börnum af Sólskinsdeild leikskólans Grænuborgar og um leið var myndlistasýning barnanna opnuð á Skólavörðustíg. Þau hafa haft umhverfið á Skólavörðustígnum sem viðfangsefni fyrir sýninguna og eru flestar myndirnar af Leifi Eiríkssyni. 

Borgarstjóri skoðaði sýninguna með leikskólabörnunum og trommarar frá Kramhúsinu börðu bumbur við opnuna. 

Sumargötur er sameiginlegt verkefni borgaryfirvalda og rekstraraðila og þjóna þeim tilgangi að taka sem best á móti gestum og gangandi í miðborginni. Göngugötur í miðborginni hafa undanfarin ár auðgað mannlífið í bænum um leið og þær bæta aðgengi gangandi og hjólandi fólks að verslun og þjónustu.