Sóley Tómasdóttir tekur við formennsku í mannréttindaráði

Mannréttindi

""
Samþykkt var á fundi borgarstjórnar í gærkvöld að Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstri grænna, taki sæti Lífar Magneudóttur borgarfulltrúa í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. 
Sóley verður formaður mannréttindaráðs. Þá var ennfremur samþykkt að Stefán Björnsson taki sæti Jónu Bjargar Sætran í mannréttindaráði. Í ráðinu sitja auk Sóleyjar og Stefáns þau Diljá Ámundadóttir, Sabine Leskopf, Magnús Már Guðmundsson, Hildur Sverrisdóttir og Magnús Sigurbjörnsson.