Stefán Pálsson sagnfræðingur mun leiða stórskemmtilega sögugöngu í Viðey þriðjudagskvöldið 9. júní og ganga með gesti um vestureynna.
Vestari hluti Viðeyjar tengist einkum landbúnaði í eynni í gegnum tíðina, klausturhaldi og ræktunartilraunum Skúla Magnússonar fógeta. En eyjunni tengjast einnig sjóslys, útilistaverk og blóðugum bardögum siðaskiptaaldar. Sagan drýpur af hverju strái og óhætt að lofa lifandi og fróðlegri leiðsögn með Stefáni.
Á þriðjudagskvöldum eru aukaferðir til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn byrjar.
Gangan hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu en siglt verður heim kl. 21.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100 fyrir fullorðna og kr. 550 fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt er fyrir 6 ára og yngri.
Við minnum á að handahafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu en handhafar Gestakorts Reykjavíkur sigla frítt.
Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.