Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Reykjavíkurborg og mennta- og menningarmálaráðuneyti undirrituðu á föstudag samstarfssamninga vegna Smáþjóðaleikanna sem haldnir verða í Reykjavík í sumar.
Framlag Reykjavíkurborgar er í formi leigukostnaðar vegna íþróttamannvirkja allt að 20 m.kr. og endurnýjunar og viðhalds áhalda í keppnismannvirkjum um 200 m.kr. Framlag ríkisins vegna Smáþjóðaleikanna á fjárlögum 2014 og 2015 er alls 100 m.kr. Bæði ríki og Reykjavíkurborg eiga fulltrúa í skipulagsnefnd Smáþjóðaleikanna og hafa þeir komið að undirbúningi leikanna með virkum hætti.
Smáþjóðaleikarnir verða haldnir 1. til 6. júní 2015 í Reykjavík og eru þetta 16. leikarnir en þeir fyrstu voru haldnir í San Marínó árið 1985. Níu þjóðir taka þátt í Smáþjóðaleikunum, en auk Íslands eru það San Marínó, Andorra, Mónakó, Malta, Liechtenstein, Kýpur, Svartfjallaland og Lúxemborg. Keppt er í ellefu íþróttagreinum en þær eru frjálsíþróttir, sund, júdó, skotfimi, borðtennis, körfuknattleikur, áhaldafimleikar og golf.
1.200 sjálfboðaliðar koma að leikunum
Kostnaðaráætlun Smáþjóðaleikanna hljóðar upp á tæpar 600 milljónir króna. Tekjur leikanna felast í þátttökugjöldum, styrkjum frá Ólympíuhreyfingunni, samstarfsaðilum og opinberum aðilum.
Þjóðhagsleg áhrif af Smáþjóðaleikunum eru umtalsvert meiri en kostnaðaráætlunin ein og sér segir til um, því auk íþróttamanna og þjálfara koma fjölmargir til landsins á eigin vegum. Í þeim hópi eru margir fulltrúar íþróttahreyfinga viðkomandi þátttökuþjóða, fjölskyldumeðlimir íþróttamanna, blaðamenn og þjóðhöfðingjar. Allir kaupa þessir aðilar flugfargjöld, gistingu, mat, akstur og skoðunarferðir.
Þá má ekki gleyma ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða en gert er ráð fyrir því að það verði alls 1.200 sjálfboðaliðar sem starfa við ýmis verk á leikunum og í aðdraganda þeirra.
Nánari upplýsingar: iceland2015.is