Smáþjóðaleikarnir 2015 voru settir í Laugardalshöllinni í gærkvöld. Glæsileg dagskrá var við Setningarhátíðina. Íþróttafólk frá öllum þátttökuþjóðum gengu fylktu liði inn í höllina við upphaf dagskrár og var eldur tendraður á glæsilegu eldstæði fyrir utan Laugardalshöll.
1200 þátttakendur eru nú mættir í Laugardalinn, keppendur, fararstjórar og fylgdarlið. Keppendurnir 706 notuðu gærdaginn til þess að æfa sig fyrir sjálfa keppnina og tóku svo þátt í setningarhátíðinni í gærkvöldi.
Keppnisdagskráin hófst klukkan 9 í morgun með keppni í skotíþróttum sem fram fór í Íþróttahúsi ÍFR í Hátúni. Keppendur í sundi, borðtennis og tennis hófu keppni kl. 10 í morgun en einnig er keppt í blaki, frjálsum, fimleikum, körfuknattleik og strandblaki í dag. Á heimasíðu leikanna, www.iceland2015.is má sjá dagskrá leikanna.
Frítt er inn á alla íþróttaviðburði og allir hvattir til þess að nýta sér þetta einstaka tækifæri til þess að koma og sjá heimsklassa íþróttamenn sýna hvað í þeim býr.
Heimasíða Smáþjóðaleika 2015: www.iceland2015.is
Facebook: Smáþjóðaleikar 2015
Instagram: isiiceland
Twitter: isiiceland
#gsse2015
#blossi