Skýrsla um ferðaþjónustu fatlaðs fólks

Stjórnsýsla Velferð

""

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur gefið út skýrslu með niðurstöðum úttektar á aðdraganda, innleiðingu og framkvæmd breytinga á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu sem unnin var að ósk eigendahóps og stjórnar Strætó bs.  Í úttektinni var lögð sérstök áhersla á að skoða hvernig staðið var að stjórnun breytinganna út frá þekktum fræðilegum viðmiðum þar um.

Í skýrslu Innri endurskoðunar er sett fram heildarmat á hinum viðamiklu breytingum sem ráðist var í á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu og voru á ábyrgð sveitarstjórna og starfsmanna sex sveitarfélaga. Að breytingunum komu einnig stjórn samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), stjórn og starfsmenn Strætó bs., auk hagsmunasamtaka s.s. Sjálfsbjargar og Öryrkjabandalags Íslands. Að mati Innri endurskoðunar var fyrirfram nokkuð augljós ávinningur af því að sameina rekstur ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem skyldi koma notendum ferðaþjónustunnar til góða og unnið var eftir stefnumörkun sveitarfélaganna sem birtist fyrst í stofnsamningi Strætó bs. frá árinu 2001.



Margt til fyrirmyndar í ákvarðanatöku

Margt var vel unnið í aðdraganda breytinga á ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu og segja má að verklagið hafi á þessu stigi í grundvallaratriðum fylgt þeim skrefum sem skilgreind hafa verið í aðferðafræði breytingastjórnunar. Vinna þeirra sem lögðu hönd á plóginn á upphafsstigum í breytingaferlinu var að langmestu leyti vel unnin af hálfu sveitarfélaganna sem að þeim stóðu, stjórn SSH og þeim verkefnahópum sem skipaðir voru vegna fyrirhugaðra breytinga. Allnokkurt samráð var við hagsmunasamtök notenda ferðaþjónustu fatlaðs fólks lengi framan af í aðdraganda breytinga á ferðaþjónustunni. Ákvarðanataka og stefnumótun sveitarstjórna í aðdraganda breytinga á ferðaþjónustu fatlaðs fólks var til fyrirmyndar á margan hátt og telja verður að litið verði til vinnulags í þessum efnum þegar kemur að því að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjá tækifæri til frekari samreksturs á þjónustu við íbúa sína í framtíðinni.

 

Stjórnun breytinga misfórst

Undirbúningsfasanum lauk með því að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu samkomulag um ferðaþjónustu fatlaðs fólks í maí 2014. Í samkomulaginu kemur fram að samráðshópur félagsmálastjóra á höfuðborgarsvæðinu ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á verkefninu. Með samkomulaginu var samþykkt að fela Strætó bs. umsýslu með rekstri ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Sveitarfélögin undirrituðu einnig þjónustulýsingu til að lýsa nánar útfærslu þjónustunnar, bæði hlutverki félagsþjónustu sveitarfélaganna og hlutverki Strætó bs., þannig að báðum aðilum væri ljóst hvar ábyrgð hvers verkþáttar lægi. Þjónustulýsingin var einnig undirrituð af framkvæmdastjóra Strætó bs. Samkomulagið og þjónustulýsingin fjalla ágætlega um ábyrgð, umboð og hlutverk aðila við framkvæmd þjónustunnar en veita á hinn bóginn ekki leiðbeiningar um hvernig staðið skuli að innleiðingu breytinganna sem felast í sameiningu ferðaþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.



Stjórnun breytinga á ferðaþjónustu fatlaðs fólks eftir að hin raunverulega innleiðing átti að hefjast misfórst hins vegar í veigamiklum atriðum og rof kom í samráð við hagsmunasamtök notenda. Engum var falin yfirumsjón með breytingunum og ábyrgð gagnvart notendum ferðaþjónustunnar, starfsmönnum ferðaþjónustu fatlaðs fólks, starfsmönnum velferðarsviða sveitarfélaganna og starfsemi Strætó bs. Aðkoma samráðshóps félagsmálastjóra að málinu strax á fyrstu stigum innleiðingar og ráðning breytingastjóra hefði verið til þess fallin að greiða fyrir farsælli innleiðingu með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Þá var upphafi nýrrar sameiginlegrar akstursþjónustu valin slæm tímasetning þar sem breytingarnar voru keyrðar í gegn á miklum annatíma um síðustu áramót í stað þess að bíða fram á sumar, eins og raunar hafði verið bent á í aðdraganda breytinganna að væri heppilegast.

 

Skýrsla Innri endurskoðunar um sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðs fólks.