Skrafað um frístundastarf á stórfundi unglinga

Skóli og frístund

""
Tvö hundruð ungmenni úr 8.-10. bekk grunnskólans komu saman til stórfundar í Ráðhúsinu í dag til að ræða hvað mætti betur fara í frístundastarfinu. 
Efnt var til fundarins á vegum starfshóps sem er að móta stefnu fyrir frístundastarf á vegum borgarinnar. Stórfundurinn fór fram undir handleiðslu starfsfólks úr frístundamiðstöðvunum en markmiðið var að ná fram hugmyndum unglinganna til að nýta við stefnumótunarvinnuna. Jafnframt verða hugmyndir þeirra nýttar til að skipuleggja frístundastarfið með það að markmiði að efla það og bæta á forsendum unglinganna. 
 
Á stórfundinum var unnið í hópum og voru fjölmargar hugmyndir skráðar og skeggræddar, s.s. að minnka heimanámið og fá ódýrari strætómiða til að komast í frístundastarf hvar sem er í borginni.



Fundurinn og niðurstöður hans voru myndaðar og verður sett saman heimildarmynd sem bæði mun nýtast stefnumótunarhópnum og í félagsmiðstöðvarstarfinu sem byggir á virku unglingalýðræði.