Skólum boðið á margradda maí

Skóli og frístund Mannlíf

""

Á Alþjóðadegi menningarlegrar fjölbreytni, fimmtudaginn 21. maí, býður Borgarbókasafnið skólum og frístundamiðstöðvum að taka þátt í að varpa ljósi á mismunandi raddir og tungumál borgarbúa á öllum aldri. 

Á margradda maí verður sjónum beint að öllum þeim fjölbreyttu tungumálum sem töluð eru í borginni. Þá er ekki endilega átt við þjóðtungur eingöngu heldur leitum við eftir fjölbreyttum orðaforða og tungutaki og fjölbreyttum tjáningarleiðum og boðskiptum.

Fimmtudaginn 21. maí kl.11.00 verður sögustund á Borgarbókasafni í Grófinni og sungið á mörgum tungumálum. Í kjölfarið má leika sér í tungumálasmiðjum safnsins, halda áfram með sögustundir frá ýmsum heimsálfum og á ólíkum tungumálum og glugga í spennandi bækur. Við bjóðum öllum skólum og frístundamiðstöðum að koma og hafa það notalegt í bókasafninu í Grófinni og taka þátt í að gefa fjölbreytileikanum rödd.



Dagskrá



Kl. 11.00 Söngur og sögustund á ýmsum tungumálum

Kl. 12.45 Menningarmót nemenda í 4. og 6. bekk Landakotsskóla

Kl. 15.00 Taktur og táknmál. Töfrandi taktveisla þar sem má upplifa ljóð eftir börnin, útfærð með takti og á táknmáli. Samstarf frístundaheimilisins Halastjörnunnar og frístundaheimilisins Eldflaugarinnar.

Kl. 16.00 Café Lingua |Sniðug málsnið í margradda maí:

-„Hnífaparið“ rappa „Gervisykrað samfélag“  – vinningshafar á Ljóðaslammi 2015, Halldóra Líney Finnsdóttir og Hekla Baldursdóttir.

- Augnstýring - að stýra tölvu með augunum, Brandur Ketilsson

-Tungmálastöðvar



Allir eru velkomnir að skrá sig á stöð eða bara að líta við og drekka í sig lifandi og fjölbreyttan tungumálaheim borgarinnar. Skráning í gegnum netfangið kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is.



Viðburðurinn er samstarf Borgarbókasafns við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, frístundamiðstöðina Kamp, Landakotsskóla, skóla – og frístundasvið Reykjavíkurborgar og málfarsráðunautar Ríkisútvarpsins.