Hvað þarf til að skólinn sé fyrir alla? Er spurningin á nóvemberfundi Náum áttum, opnum samstarfshópi um fræðslu og forvarnamál.
Fundurinn er miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 8.15 til 10.00 og hann er haldinn á Grand Hóteli, Sigtúni 38.
Frummælendur eru;
dr. Sigrún Harðardóttir,lektor við félagsráðgjafadeild Hí, sem heldur fyrirlestur um líðan framhaldsskólanemenda, námserfiðleika, áhrifaþættir og ábyrgð samfélagsins.
Það er alltaf til leið heitir erindi Helga Gíslasonar, sérkennslufulltrúa grunnskóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, en Helgi fjallar um hvort sérfræðiþjónusta sveitarfélags geti stutt við nemendur sem eru utanvelta í skólakerfinu.
Ragna Þóra Karlsdóttir, kennsluráðgjafi, þroskaþjálfi og sérkennari, talar um hvað hægt sé að gera til að börn tileinki sér nám í skóla og að þau dafni og þroskist.
Að lokum segir Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur, frá sálfræðiþjónustu skóla.
Fundarstjóri er Margrét Júlía Rafnsdóttir frá Barnaheill. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.400 krónur og innifalið í því er morgunverður.