Það var líf og fjör í Eldborgarsal Hörpu í dag þegar skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts lék með Sinfóníuhljómsveitinni.
Eldborgarsalurinn var þétt setinn börnum úr öllum grunnskólum í Breiðholti þegar líflegir tónleikar hófust. A, B og C sveitir skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts léku með sinfóníunni en þær hafa verið að æfa með henni í vetur. Þetta var því stór dagur fyrir skólahljómsveitina og lokahnykkur á samstarfi hennar við sinfóníuna í vetur. Eftir tónleikana var börnunum boðið upp á ávexti og líflegan dans við undirleik sinfóníunnar frammi á svölum Hörpunnar.