Á fundinum 16. desember var m.a. samþykkt tillaga um að stofna starfshóp um framtíðarsýn og uppbyggingu útivistarsvæðisins.
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur hélt sinn árlega jólafund í Gufunesbæ. Á fundinum var m.a. samþykkt tillaga að stofna starfshóp um framtíðarsýn og uppbyggingu útivistarsvæðis og útináms í Gufunesbæ.
Starfsfólk Gufunesbæjar og Náttúruskólans tóku að sjálfsögðu vel á móti fulltrúum ráðsins og var boðið upp á skemmtigöngu í skógarlundinn við bæinn þar sem þau fengu kynningu á Náttúruskólanum og grenndarsvæðum í Reykjavík. Á meðan kraumaði jóladrykkurinn yfir eldinum og að sjálfsögðu voru jólasnúðar í boði.