Á þessu ári verður skimað fyrir þunglyndi og kvíða hjá nemendum í 9. bekk í öllum hverfum Reykjavíkur. Sérfræðiþjónusta skóla á þjónustumiðstöðvum borgarinnar stendur fyrir verkefninu. Sams konar skimun hefur verið gerð í Breiðholti frá árinu 2009 og gefið góða raun.
Skimað er með því að starfsmenn á sérfræðiþjónustu skólanna leggja fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla spurningalista og vinna þeir úr niðurstöðum.
Kvíði og þunglyndi eru þær raskanir sem endurspegla helst tilfinningalegan vanda barna og unglinga og geta leitt til erfiðleika í námi. Afleiðingarnar koma meðal annars fram í brottfalli úr skóla og er það eitt það hæsta í framhaldsskólum á Íslandi miðað við önnur OECD lönd. Þeim börnum sem mælast með einkenni kvíða og þunglyndis stendur til boða að fara á námskeið í hugrænni atferlismeðferð eða að fá viðtal við sálfræðing.
Skimun er mikilvægur þáttur í forvarnarstarfi og er skimun meðal þess sem felst í nýrri geðheilbrigðisstefnu sem heilbrigðisráðherra vinnur að. Þar er bent á mikilvægi þess að allir unglingar á landinu verði skimaðir fyrir þunglyndi og kvíða.
Matið er lagt fyrir með samþykki foreldra og er þeim sent bréf þess efnis þar sem þeir eru beðnir um að láta vita ef þeir vilja ekki að þeirra barn taki þátt. Það heyrir til undantekninga að foreldrar hafni tilboði um skimun barns.