Nýlega voru styrkir úr verkefnasjóðnum Heita pottinum afhentir við hátíðlega athöfn við Breiðholtslaug. Heiti Potturinn er styrktarsjóður fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára, en markmið sjóðsins er að styrkja frumkvæðisverkefni ungs fólks í Breiðholti. Alls bárust 16 umsóknir í styrktarsjóðinn, en 9 hlutu styrk að þessu sinni. Það var Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR, sem afhenti styrkina, en þetta er þriðja árið sem úthlutun úr Heita Pottinum fer fram.
Verkefnin eru mjög fjölbreytt að þessu sinni, en á meðal verkefna eru jóðlsöngur á leikskólum hverfisins, listasýning sem sýnir fjölbreyttan arkitektúr Breiðholtsins og hljóðverk skapað með upptökum frá vel völdum stöðum í hverfinu. Þær Hrefna Björg Gylfadóttir og Margrét Arnardóttir tóku lagið við Breiðholtslaugina (eins og sjá má hér), en þær ætla að heimsækja alla leikskóla í Breiðholti og jóðla fyrir börn við undirleik harmonikku. Þórgnýr var að vonum ánægður með fjölbreytni verkefnanna sem voru valin: "Frumkvæðisverkefni af þessu tagi eru í eðli sínu ómetanleg og það er Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur sannur heiður að geta stutt við ungmennin í framkvæmd þeirra."
Verkefni styrkt af Heita Pottinum árið 2015:
-
Deildu – þrír skiptimarkaðir á fötum, afleggjurum og bókum í sumar.
Styrkþegar: Sólveig Lára Gautadóttir og Emma Theodórsdóttir
-
Horfðu til himins – Viðburður í Ölduselslaug á Breiðholtshátíðinni, með flothettum, korkskúlptúrum, tónlist og listasýningu.
Styrkþegi: Selma Reynisdóttir
-
Byggingar í Breiðholtinu – listasýning sem sýnir fjölbreyttan arkítektúr Breiðholtsins.
Styrkþegi: Björk Emilsdóttir
-
Hústónlist í Breiðholti – átta tónlistarviðburðir með tónlistarmönnum og plötusnúðum víðs vegar um Breiðholtið
Styrkþegar: Jón Reginbald Ívarsson, Áskell Harðarson og Ómar Egill Ragnarsson
-
(H)ljóðverk Breiðholtsins – Hljóðverk skapað með upptökum frá vel völdum stöðum í Brh. Gefið út á netinu og á tónleikum í lok sumars.
Styrkþegar: Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Rögnvaldur Konráð Helgason
-
Breiðholt - suðrænt og seiðandi – videóverk sem sýnir Breiðholtið á framandi hátt og verður sýnt í heimahúsi
Styrkþegar: Berglind Erna Tryggvadóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir
-
Brettagarður í Jafnaseli – áframhaldandi viðhald, klæða veggi á grillsvæði, styrkja festingar á raili, mála og fleira
Styrkþegar: Sverrir Örn Sverrisson og Bjarni Þór Theodórsson
-
Jóðlað fyrir börn – kynningar á jóðli til leikskólabarna í Breiðholti ásamt harmonikkuleikara
Styrkþegar: Hrefna Björg Gylfadóttir og Margrét Arnardóttir
-
Dansnámskeið fyrir börn og unglinga í Miðbergi, frítt inn.
Styrkþegar: Uldarico Rafael De luna og Richmond Raagas Landayan