Sérstök stjórn skipuð

Stjórnsýsla Velferð

""

Ákveðið hefur verið að stofna sérstaka stjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, mun hafa forystu fyrir stjórninni sem verður skipuð fulltrúum frá Öryrkjabandalaginu, Sjálfsbjörg og Þroskahjálp auk fulltrúa frá hverju sveitarfélagi fyrir sig sem eiga aðild að ferðaþjónustunni.

Skipun stjórnarinnar var ákveðin á sameiginlegum eigendafundi og stjórnar Strætó í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Skipunartími stjórnarinnar verður fjórar vikur en að þeim tíma liðnum verður endurskoðað hvort stjórnin starfi áfram.

Meginhlutverk stjórnarinnar verður að tryggja örugga og eðlilega þjónustu og framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðs fólks eins fljótt og kostur er.

Stjórnin mun hafa fullt umboð til að gera þær breytingar sem hún telur nauðsynlegar til að bæta úr þjónustu og framkvæmd.

Hún hefur ennfremur fullt umboð til að gera tillögur um breytingar á fyrirkomulagi eða framkvæmd þjónustunnar til framtíðar.

Stjórnin mun gera sérstaka úttekt á alvarlegu máli Ólafar Þorbjargar Pétursdóttur.

Þá verður Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar falið að gangast fyrir óháðri úttekt á aðdraganda, innleiðingu og framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðs fólks hjá Strætó.

Á fundinum var lagt til og samþykkt að eftirfarandi fulltrúar verði skipaðir í stjórnina: Þorkell Sigurlaugsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðlaug Kristjánsdóttir, Guðjón Erling Friðriksson, Tryggvi Friðjónsson framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, Bryndís Snæbjörnsdóttir formaður Þroskahjálpar og Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalags Íslands og Stefán Eiríksson formaður stjórnar. 

Starfsmaður stjórnarinnar verður Jóhannes Rúnarsson.

Stjórnin hefur störf nú þegar.

Fundargerð eigenda og stjórnar Strætó.