Mikil fagnaðarlæti brutust út í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi meðal skólafélaga í Seljaskóla og Háteigsskóla þegar þeir komust áfram í hæfileikakeppninni Skrekk.
Skólarnir tveir eru þar með komnir í átta liða úrslit ásamt Austurbæjarskóla og Hagaskóla og keppir á undanúrslitakvöldinu í Borgarleikhúsinu þann 16. nóvember. Sýnt verður beint frá þeirri keppni á Skjá einum.
Atriði Háteigsskóla fjallaði um baráttuna gegn loftslagsbreytingum og atriði Seljaskóli fjallaði um hvernig andleg veikindi geta lagt einstaklinginn að velli.
Til hamingju Háteigsskóli og Seljaskóli!