Föstudaginn 20. mars næstkomandi verður haldið málþing þar sem sjónum verður beint að því með hvaða hætti má auka og bæta samræðu þvert á menningu og tungumál í íslensku samfélagi.
SAMTAL UM SAMFÉLAG - mitt, þitt eða okkar? er yfirskrift málþings sem haldið verður í Menningarhúsinu Gerðubergi föstudaginn 20. mars og hefst kl. 13.30.
Sjónum verður beint að því með hvaða hætti má auka samræðu þvert á menningu og tungumál í íslensku samfélagi.
Þórir Jónsson Hraundal frá Sagnfræðistofnun HÍ flytur erindi um fjölmenningarsamfélagið og veltir upp þeirri spurningu hvort mótun þess sé á ábyrgð okkar allra.
Stefanía G. Kristinsdóttir segir frá verkefninu Menntun núna og Helga Hauksdóttir, kennsluráðgjafi á Akureyri, fjallar um fjölmenningarstarf í leik- og grunnskóla.
Þá mun Fríða B. Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, segja frá fjölmenningarstefnu borgarinnar í skóla og frístundastarfi.
Anna Wojtynska mannfræðingur flytur erindi sitt á ensku „Integration on the labour market“ og Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni,
segir frá fjölmenningarstarfi safnsins og stýrir Café Lingua í kaffihléi.
Málþingsstjórar eru Hanna Ragnarsdóttir prófessor og Gunnar J. Gunnarsson, dósent frá Háskóla Íslands. Í lok málþingsins munu Óttarr Proppé alþingismaður og Susan Rafik Hama, doktorsnemi við HÍ, sjá um samantekt og umræður.
Málþingið er samstarfsverkefni Rannsóknastofu í fjölmenningarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Menntun núna verkefnisins í Breiðholti og Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, með stuðningi Akureyrarbæjar, Reykjavíkurborgar og Háskólans á Akureyri. Skráning á heimasíðunni www.menntun-nuna.is og með tölvupósti gegnum netfangið menntun.nuna@reykjavik.is. Málþingið er öllum opið.