Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur gert samning við Geðsvið Landspítala um samstarf meðferðargeðdeildar og íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk.
Meðferðargeðdeildin Laugarás heyrir undir geðsvið Landspítala og er fyrir ungt fólk, á aldrinum 18-30 ára, með byrjandi geðrofssjúkdóm. Austurbrún 6 er íbúðakjarni á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir geðfatlaða einstaklinga þar sem unnið er samkvæmt stefnu borgarinnar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Þjónustan skal vera einstaklingsmiðuð, heildstæð og sveigjanleg með áherslu á valdeflingu og stuðning við sjálfstætt líf.
Markmið verkefnisins er að auka líkur á sjálfstæðri búsetu geðfatlaðra einstaklinga til framtíðar með eða án stuðnings frá sveitarfélaginu og geðsviði.
Samstarfið er tilraunaverkefni, til tveggja ára, þar sem velferðarsvið skuldbindur sig til að útvega tvær til þrjár íbúðir í samstarfi við Félagsbústaði og þjónusta íbúa þeirra frá íbúðakjarna við Austurbrún. Þjónustan samsvarar hálfu stöðugildi stuðningsráðgjafa.
Laugarásinn skuldbindur sig til að tilnefna einstaklinga í úrræðið í samstarfi við þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs en bera jafnframt ábyrgð á lyfjaumsjón. Einnig munu sérfræðingar geðsviðs veita starfsmönnum íbúðakjarnans að Austurbrún fræðslu, handleiðslu og ráðgjöf. Á samningstímanum verður reglubundið samráð um framgang verkefnisins, en leigusamningar eru gerðir við geðfatlaða einstaklinga til 12 mánaða með möguleika á framlengingu.
Samningsaðilar tilnefna hvor um sig tvo aðila sem funda tvisvar á ári til að fylgjast með framgangi verkefnisins. Í lok tímabils verður árangur af verkefninu metinn út frá fjölda einstaklinga sem hafa nýtt úrræðið og þjónustuþörf við búsetulok.