Samstarf um mál og læsi á öllum skólastigum

Skóli og frístund

""

Leikskólinn Sunnuás, Langholtsskóli og frístundaheimilið Glaðheimar unnu á skólaárinu þróunarverkefni undir heitinu Samstarf um mál og læsi alla skólagönguna.

Meginmarkmiðið með verkefninu var að þróa samstarfsáætlun sem byggði á læsisstefnu leikskóla og lestrarstefnu fyrir grunnskólana, styrkleikum beggja skólastiganna og þeim tækifærum sem liggja í vinnu með mál og læsi í frístundastarfi ásamt grunnþættinum læsi í aðalnámskrá leik- og grunnskóla.

Stefnt var að því að til yrði heildstæð samstarfsáætlun sem gæti orðið fyrirmynd fyrir sambærilegar áætlanir í öðrum hverfum. Jafnframt var stefnt að því að efla samstarf við foreldra um mál og læsi um leið og áhersla var lögð á að nýta möguleika upplýsinga- og samskiptatækninnar í eflingu máls og læsis. Nýlunda verkefnisins fólst ekki hvað síst í þátttöku frístundaheimilisins með aukinni þátttöku þess í sameiginlegum verkefnum og fræðslu til starfsmanna. Verkefnið hlaut styrk úr Sprotasjóði

Lokaskýrsla með lýsingu á framkvæmd verkefnisins og þeim gögnum sem stuðst var við.