Samspil – ókeypis íþróttaæfingar í Breiðholti

Velferð Íþróttir og útivist

""

Í sumar mun verkefnið SAMSPIL bjóða upp á ókeypis íþróttaæfingar í Breiðholti. Æft verður tvisvar í viku á skólalóð Hólabrekkuskóla. Æfingarnar eru ætlaðar börnum í þriðja til áttunda bekk, en greinarnar sem í boði verða eru körfubolti, frjálsar íþróttir, keila, fótbolti og handbolti. Færir þjálfarar munu hafa umsjón með æfingunum. Ef veður verður slæmt á verkefnið athvarf í íþróttahúsinu við Austurberg 3. Öll börn eru hjartanlega velkomin á æfingu hjá SAMSPIL, hvort sem þau eru vön að stunda íþróttir eða ekki.

Æfingarnar verða á mánudögum og miðvikudögum á eftirfarandi tímum:

Kl. 15.00-16.15 - 3.-5. bekkur,

Kl. 16.15-17.30 - 6.-8. bekkur.

Fyrsta æfing sumarsins verður mánudaginn 15. júní, en æfingum lýkur síðan um mánaðarmótin júlí/ágúst. SAMSPIL er unnið í samstarfi við ÍR og Þjónustumiðstöð Breiðholts og styrkt af ÍTR.