Risaeðluást og örlæti

Skóli og frístund

""

Fulltrúar elstu barnanna á leikskólanum Sæborg komu á skrifstofu skóla- og frístundasviðs í dag og afhentu starfsfólki þar listaverkið Risaeðluást. 

25 börn á elstu deildinni unnu skipulega að þessu litríka málverki sem nú prýðir húsakynni skóla- og frístundasviðs. Börnin fengu mikinn áhuga á risaeðlum eftir að nokkrar slíkar voru keyptar í leikfangasafn Sæborgar, þau grandskoðuðu risaeðlubækur, teiknuðu hinar ýmsu tegundir risaeðlna og ákváðu loks að gera stórt málverk með þessu margbrotna myndefni. 

Í fyrstu teiknuðu nokkur börn upp myndir af risaeðlum á glærur sem þau síðan vörpuðu yfir á myndflötinn, þar rissuðu þau upp útlínur þeirra, máluðu og fylltu inn í hverja risaeðlu. Loks var málaður lítríkur bakgrunnur. Kennarar komu lítið við sögu í þessu frjálsa vinnsluferli og sérhvert barn fékk að njóta sín í samstarfinu.

Þegar myndverkið var tilbúið komu fram ýmsar hugmyndir að nafni á því og að lokum var um það kosið. Niðurstaðan var að kalla verkið Risaeðluást. Við afhendingu listaverksins kom fram að risaeðlur voru tilfinningaverur rétt eins og mennirnir, þær voru vissulega grimmar en gátu líka elskað og hætt lífi sínu fyrir afkvæmi sín. Og þar að auki elska jú börn að leika sér með risaeðlur og fræðast um sögu þeirra.