Rimaskóli sigraði Reykjavíkurmót grunnskóla í skák

Skóli og frístund

""

Rimaskóli stóð uppi sem sigurvegari líkt og tvö undanfarin ár á Reykjavíkurmóti grunnskólanna, í öðru sæti varð Ölduselsskóli og Laugalækjarskóli í því þriðja.  

Það var þéttsetinn bekkurinn í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur þegar Reykjavíkurmót grunnskólasveita í skák 2015 var haldið þar 9. febrúar. Alls voru 28 skáksveitir skráðar til leiks á Reykjavíkurmótinu, rúmlega 100 grunnskólanemendur, en með tilkomu Skákakademíu Reykjavíkur inn í grunnskólana á undanförnum árum hefur skákáhugi barna aukist til muna.

Rimaskóli stóð uppi sem sigurvegari og hlaut A-sveit skólans 25 vinninga af 28 mögulegum. Skólinn sendi sex skáksveitir á mótið og urðu fjórar þeirra meðal sjö efstu á mótinu. Í öðru sæti varð A- sveit Ölduselsskóla með 22 vinninga, A-sveit Laugalækjarskóla í 3. sæti með 20,5 vinninga og A-sveit Árbæjarskóla og B-sveit Rimaskóla í 4. – 5. sæti með 18 vinninga.

Reykjavíkurmeistarar Rimaskóla eru á öllum aldri með skákdrottninguna Nansý Davíðsdóttur á 1. borði. Aðrir liðsmenn eru Jóhann Arnar Finnsson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Kristófer Halldór Kjartansson og Joshua Davíðsson, bróðir Nansýjar sem er aðeins 10 ára gamall. Efsta stúlknasveitin kom frá Melaskóla.

Skákstjóri var Björn Jónsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og gekk mótið hratt og örugglega fyrir sig.