Reykvískir nemendur efstir í samræmdum prófum

Skóli og frístund

""
Nemendur í Reykjavík standa sig best í öllum greinum samkvæmt fyrstu niðurstöðum samræmdra prófa í 10. bekk. 
Samræmd próf eru tekin í íslensku, ensku og stærðfræði. Hlutfall reykvískra nemenda sem fá einkunnina A í þessum greinum er á bilinu 9,7-11,3%.


Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntamálastofnun sem sér um samræmd próf í grunnskólum landsins.