Reykjavíkurborg auglýsir starf byggingarfulltrúa

Skipulagsmál

""

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur auglýsir starf byggingarfulltrúa laust til umsóknar.

Starf byggingarfulltrúa er lögbundið, sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Hlutverk hans er að veita embættinu faglega forystu og móta framtíðarstefnu innan ramma laga og reglugerða. Jafnframt að hafa eftirlit og eftirfylgni með að lögum um mannvirki nr. 160/2010, reglugerðum og öðrum lögum um byggingarmál sé framfylgt. Skrifstofa skipulags, byggingar og borgarhönnunar ber ábyrgð á skipulagi byggðar, landslags og samgangna út frá samþykktri stefnumörkun, sem og eftirliti með framkvæmd skipulags. Innan hennar eru lögbundin verkefni byggingarfulltrúa. Á skrifstofunni starfa 44 starfsmenn þar af 21 hjá embætti byggingarfulltrúa. Umhverfis- og skipulagssvið er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi skv. ISO 14001 og stefnt er að því að embætti byggingarfulltrúa verði með vottað gæðastjórnunarkerfi skv. IS0 9001 á þessu ári.

Um laun og starfskjör fer samkvæmt reglum um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg og ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí nk.