Móttaka hælisleitenda og flóttamanna er vaxandi verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Unnið er í samvinnu við innanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti, Útlendingastofnun og Rauða kross Íslands.
Frá árinu 2005 hefur Reykjavík tekið á móti tæplega 95 kvótaflóttamönnum; frá Kólombíu, Afganistan, Sýrlandi, Kosovó, Kamerún, Simbabve og Úganda. Í gegnum þá vinnu hefur byggst upp sérfræðiþekking í móttöku fólks sem hér fær hæli. Félagsráðgjafar í þjónustumiðstöðvum borgarinnar eru í lykilhlutverki í vinnu með flóttafólki í samvinnu við starfsfólk skóla- og frístundasviðs og Rauða kross Íslands.
Hvatningarverðlaun velferðarráðs árið 2014 voru m.a. veitt til hælisleitendateymis Miðborgar og Hlíða en teymið þótti sýna öryggi í aðstæðum sem oft eru erfiðar. Mikil samstaða ríkir í teyminu þegar á reynir og þjónusta þess byggir á jákvæðni, virðingu og alúð.
Þegar talað er um flóttafólk er annars vegar átt við kvótaflóttamenn og hins vegar hælisleitendur. Flóttafólk fær mismunandi þjónustu eftir því hvort það fær stöðu sína viðurkennda eftir hælismeðferð eða kemur til landsins sem kvótaflóttafólk í boði ríkisstjórnar Íslands.
Hælisleitendur koma upp á von og óvon og fæstir þeirra fá stöðu flóttamanns. Alls sóttu 175 um hæli árið 2014 og þar af fengu 50 dvalarleyfi. Margir velja að setjast að í Reykjavík. Kvótaflóttafólk fær víðtækan stuðning til þess að aðlagast íslensku samfélagi en það er handvalið af hinu opinbera.
Reykjavíkurborg vill leggja áherslu á að einstaklingar, sem verið hafa í hælismeðferð og hafa fengið stöðu flóttamanns, fái sambærilega þjónustu og kvótaflóttafólk og mat á þjónustu taki mið af þörfum og sérstöðu hvers og eins. Mjög mikilvægt er að tryggja góða þjónustu í upphafi og fyrirbyggja vanda sem getur komið upp seinna.
Í byrjun september samþykkti borgarstjórn að óska eftir viðræðum við ríkisvaldið um hlutverk og aðkomu borgarinnar að móttöku flóttafólks og lýsti sig reiðubúna til að leggja sitt af mörkum til að tryggja sem flestum öruggt skjól.
Velferðarsvið og mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur sjá um þjónustu við flóttamenn hjá Reykjavíkurborg.