Reykjavíkurborg hefur samþykkt sínar eigin reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks. Frá árinu 2011 hefur Reykjavíkurborg úthlutað styrkjunum á grundvelli leiðbeinandi reglna velferðarráðuneytisins. Úthlutun fer fram einu sinni á ári en auglýst er eftir umsóknum á vef borgarinnar.
Nýjar reglur Reykjavíkurborgar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa eru byggðar á leiðbeinandi reglum velferðarráðuneytisins sem tóku gildi 1. febrúar 2012.
Mikilvægt er að Reykjavíkurborg hafi samþykktar reglur um úthlutun styrkjanna en þær veita umsækjendum nauðsynlegar upplýsingar um rétt sinn og stuðla að gagnsæi hvað varðar úthlutun.
Frá árinu 2011 hafa verið kr. 3.400.000.- til úthlutunar ár hvert og er sú upphæð sú sama og svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra í Reykjavík úthlutaði fyrir yfirfærslu málaflokksins. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu fjármála og rekstur á velferðarsviði Reykjavíkurborgar er upphæð til úthlutunar árið 2015 kr. 3.635.135.
Í neðangreindri töflu er yfirlit yfir veitta styrki á árunum 2011-2014, hversu mörgum umsóknum var synjað og hámarksupphæð úthlutunar til einstaklings.
Reglur Reykjavíkurborgar um styrki til náms- og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks