GoRed átakinu var hleypt af stokkunum í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þegar sendinefnd GoRed á Íslandi afhenti borgarstjórn næluna rauða kjólinn. Sendinefndin og borgarfulltrúar voru rauðklædd af því tilefni.
Markmið GoRed er að fræða konur um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, einkenni þeirra og hvernig megi draga úr líkum á að fá þessa sjúkdóma. Rauði kjóllinn er næla sem fer í sölu um land allt og rennur ágóðinn til styrktar GoRed á Íslandi. GoRed átakið er alheimsátak á vegum Alþjóðlegu hjartverndarsamtakanna en hér á landi er það samstarfsverkefni Hjartaverndar, Heilaheilla og Hjartaheilla, auk fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga og fleiri fagaðila. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, tók við fyrsta rauða kjólnum - í rauðum kjól - og sagði þessa vitundarvakningu afar mikilvæga fyrir konur og þær fjölmennu kvennastéttir sem vinna hjá Reykjavíkurborg.
• Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum.
• Af 1.000 dauðsföllum á ári á Íslandi eru á milli 350-400 vegna hjarta- og æðasjúkdóma.
• Jafnmargar konur og karlar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
• Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna.
• Einkenni sjúkdómsins eru oftar óljósari hjá konum en körlum þannig að greiningarferli og áhættumat vegna hjarta- og æðasjúkdóma tefst oft.
• Konur bíða lengur en karlar með að leita sér hjálpar vegna brjóstverkja.
• Eftir hjartaáfall hjá konum verða þær frekar þunglyndar en karlmenn, komast síður aftur á vinnumarkaðinn og fá frekar aukaverkanir af lyfjum.