Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík hafnar

Betri hverfi

""

Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum Reykjavíkur hófust eftir miðnætti í dag, 17. febrúar. Þær standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Kjósendur þurfa að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum í farsíma eða korti til að komast inn á kosningavefinn á slóðinni kjosa.betrireykjavik.is.

Allir sem orðnir eru 16 ára og eiga lögheimili í Reykjavík geta tekið þátt í kosningunum.  Kosið er um allt að 20 verkefni í tíu hverfum Reykjavíkur.  Til þess að geta kosið þurfa kjósendur að hafa fengið sér rafræn auðkenni (þau sömu og notuð eru í leiðréttingunni og í heimabönkum svo dæmi sé tekið) eða íslykil sem tugþúsundir hafa fengið sér.

Þegar auðkenning hefur átt sér stað geta kjósendur valið sér hverfi til að kjósa í og valið verkefni upp að ákveðinni upphæð sem er sú fjárúthlutun sem Reykjavíkurborg hyggst eyða á þessu ári í hugmyndir frá íbúum.  Allt að 20 hugmyndir eru á verkefnalista hvers hverfis.

Þetta eru fjórðu íbúakosningarnar sem Reykjavíkurborg heldur með sama sniði en slíkar kosningar hafa verið haldnar árlega frá 2012.

Úthlutað er 300 milljónum til  að framkvæma verkefni sem íbúar hafa komið með hugmyndir að í hverfum  borgarinnar. Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að framkvæma þau verkefni sem kosin eru í hverfum borgarinnar.

Reykjavíkurborg hvetur alla á kjörskrá til að nýta atkvæðið sitt. Hægt er að skoða allar hugmyndirnar fyrir hvert hverfi í rólegheitunum og fara þaðan inn á kosningavefinn. Aðgætið að hafa auðkennin á hreinu áður en lagt er í hann á hinn rafræna kjörstað.

Kosningarnar eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg sem skuldbindur sig til að framkvæma kosin verkefni á eins hagkvæman hátt og mögulegt er.

Skoða verkefni og kjósa