Í Félagsstarfinu Gerðubergi er rótgróinn og virkur félagsskapur sem kallast Prjónakaffi. Þar gefst fólki tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, óháð því hvort menn hafi áhuga á prjónlesi eða kaffidrykkju. Nýverið hélt Prjónakaffið upp á hitting nr. 300. Af því tilefni var viðburðurinn viðameiri en venjulega; farið var með gamanmál, lesin framhaldssaga og sungið og spilað við góðar undirtektir. Prjónakaffið er opið fyrir fólk á öllum aldri alla föstudaga kl. 10:00-12:00.