Öskudagur í Breiðholti

Velferð Skóli og frístund

""

Öskudagur nálgast nú óðfluga. Foreldrafélög í Breiðholti hafa tekið höndum saman um að hvetja til að þess að börn gangi milli húsa milli kl. 17:00 og 19:00, syngi og fái góðgæti að launum - í stað þess að þau fari í verslanamiðstöðvar og fyrirtæki utan hverfis. Tilraun var gerð með þetta fyrirkomulag í Seljahverfi og Bakkahverfi í fyrra og þótti hún heppnast afar vel. Heimili sem vilja taka þátt geta merkt útidyrahurð eða stigaganga með íbúðanúmeri eða nafni. Smellið hér til að nálgast "velkominn" miða til útprentunar.