Orkusparnaðarhúsi framtíðarinnar, eins framleiðendur þess kalla það, hefur verið komið fyrir við Tjörnina við inngang í Ráðhúsið. Þar mun það standa yfir helgina á meðan sýning um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis stendur yfir í Ráðhúsinu.
Húsið vann til fyrstu verðlauna í Toppstöðinni sem sýnd var á RÚV nýverið. Framleiðandi hússins er Fibra, sem er nýsköpunarverkefni til að þróa nýja gerð húsa og mannvirkja úr glertrefjum með kjarna úr steinull.
Viðfangsefni og lausnir
Auk sýningar í Ráðhúsinu verður á morgun málstofa um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið. Málstofan hefst kl. 10.30 og verða þar eftirtaldir fyrirlestrar:
- Dagur B. Eggertsson: Yfirlit yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
- Ásgeir Jónsson, Félagsvísindasvið / Hagfræðideild HÍ. Versnar ástandið áður en það batnar?
- Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ: Brýn úrræði fyrir tekjulágar fjölskyldur
- Aron Ólafsson, formaður stúdentaráðs: Framtíðarsýn stúdenta í húsnæðismálum
- Hólmsteinn Brekkan, Samtök leigjenda á Íslandi: Er leiga valkostur?
- Friðrik Ólafsson, Samtök iðnaðarins: Veruleikinn í dag og væntingar til 2018
- Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra: Hvað næst?
Í lok málstofunnar verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Nánari upplýsingar um sýningu og málstofur reykjavik.is/uppbygging