Opinn íbúafundur í Laugardal

Umhverfi

""

Hverfisráð Laugardals og íbúasamtök Laugardals boða til íbúafundar mánudaginn 23. mars næstkomandi klukkan 19.30. Rætt verður um fortíð, nútíð og framtíð hverfisins.

Fundurinn er haldinn í Laugabóli, félagshúsi Þróttara og allir eru velkomnir að taka þátt.

Björn Jón Bragason, sagnfræðingur, fjallar um Laugardalinn fyrr og nú, Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar,  kynnir umhverfi og skipulag í Laugardal og að lokum ræðir Lilja Sigrún Jónsdóttir, í stjórn íbúasamtaka Laugardals, um framtíð Laugardals.

Að erindum loknum verða pallborðsumræður með þátttöku ýmissa aðila sem tengjast starfsemi Laugardalsins.

Fundarstjóri er Heiðar Ingi Svansson, formaður hverfisráðs Laugardals. Fundurinn er öllum opinn og það verður heitt á könnunni  fyrir fundargesti.

Auglýsing vegna íbúafundarins.