Opinn fundur um upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar - upptaka frá fundi

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Nú er unnið er að endurskoðun upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar. Drög að nýrri stefnu eru í vinnslu hjá stýrihópi sem mun skila þeim til stjórnkerfis- og lýðræðisráðs fyrir 30. apríl nk.  Stjórnkerfis- og lýðræðisráð verður með opinn fund í Menningarhúsi Grófinni, 1. hæð þann 30. mars nk. klukkan 17 - 19 og þar verður fjallað um drögin.

Upptaka frá fundinum.

Þær Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Kristín Ósk Hlynsdóttir, doktorsnemi í upplýsingafræði við Háskóla Íslands, hefja fund með spennandi erindum um upplýsingar og notendaupplifun, nýsköpun og gagnsemi. Síðan kynnir Halldór Auðar Svansson helstu áherslur nýrrar upplýsingastefnu og hefur umræður.

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í umræðu um upplýsingastefnuna og hafa þannig áhrif á opnari og betri stjórnsýslu borgarinnar.

Stjórnkerfis- og lýðræðisráð verður með opinn fund í Menningarhúsi Grófinni, 1. hæð þann 30. mars nk. klukkan 17 - 19 og þar verður fjallað um drögin.

Í samræmi við auknar áherslur á samráð og íbúalýðræði hjá Reykjavíkurborg eru drög að stefnunni í birtingu á vef borgarinnar  þar sem hægt er að taka þátt í umræðu og senda inn athugasemdir við stefnuna.

 
Stýrihópurinn tekur við ábendingunum og nýtir þær við vinnu sína. 
 
Stýrihópinn skipa:
 
Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi, formaður;
Heiða Björg Hilmisdóttir varaborgarfulltrúi;
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
 
Starfsmaður hópsins er Ásta Guðrún Beck erindreki gagnsæis og samráðs.