Opið fyrir umsóknir í kirkjubyggingasjóð

Mannlíf

""

Opnað hefur verið fyrir umóknir um styrki í kirkjubyggingasjóð Reykjavíkurborgar vegna ársins 2015.

Kirkjubyggingarsjóði er ætlað að veita fjármunum til að byggja kirkjur og safnaðarheimili í Reykjavík, en einnig má styrkja endurbætur og meiriháttar viðhald á kirkjum í borginni. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2015 hefur sjóðurinn 11,2 m.kr. til ráðstöfunar í styrkveitingar. 

Umsóknir um styrki sendist Ráðhúsi Reykjavíkur merktar „Kirkjubyggingarsjóður“ fyrir 20. mars nk. 

Þau skilyrði eru sett fyrir því að umsókn sé tekin til greina að henni fylgi greinargóðar upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir, ársreikningur 2014, ráðstöfun fyrri styrkja sé um þá að ræða, svo og um fjármögnun verksins að öðru leyti. 

Frekari upplýsingar fást hjá stjórn sjóðsins. 

 

Netföng stjórnarmanna eru sem hér segir: 

Björk Vilhelmsdóttir: bjork.vilhelmsdottir@reykjavik.is

Gísli Jónasson: gisli.jonasson@kirkjan.is

Sigríður Guðmundsdóttir: siggud@landspitali.is