Óháð úttekt á sameiningu skóla

Skóli og frístund

""

Stofnun nýs skóla- og frístundasviðs og sameiningarferli leikskóla og grunnskóla var viðamikið verkefni sem hafði ekki fyrirfram augljósan og óumdeilanlegan ávinning. Þetta kemur fram í óháðri úttekt sem Intellecta gerði fyrir Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar. 

Einnig kemur fram í úttektinni að margir hlutar verkefnisins voru vel unnir og þá sérstaklega skipulagning, eftirfylgni með framgangi verkefnisins og upplýsingamiðlun. Helstu veikleikarnir við framkvæmd verkefnisins voru í aðdraganda að stofnun skóla- og frístundasviðs og sameiningu skóla þar sem lengri undirbúningstími hefði verið æskilegri. Tiltölulega gott skipulag við framkvæmd sameininganna í kjölfarið gerði það hins vegar að verkum að það tókst að klára verkefnið þrátt fyrir veikleikana.

Í skýrslunni er jafnframt bent á að marga af veikleikunum í aðdraganda sameininganna megi rekja til eðli pólitísks umhverfis þar sem erfitt sé að sameina pólitískt bakland um stór breytingaverkefni. Þá segir að fjárhagsleg markmið hafi skýrst fyrir ákvörðunartöku um sameiningar í borgarráði og borgarstjórn, en fagleg markmið hafi allan tímann verið óskýr. Hefðbundin hagsmunaaðilagreining og áhættugreining í upphafi verkefnis hefðu verið æskilegar.

Í skýrslunni eru settar fram nokkrar ábendingar, m.a. sú að æskilegra hefði verið að sameina skóla- og frístundasvið áður en ráðist var í sameiningar hjá skólum, leikskólum og frístundaheimilum. Þar með hefði verið kominn sá stefnuvettvangur sem nauðsynlegur var til að fjalla um framtíðarsýn innan sviðsins og til að leiða verkefnið. Einnig að liggja hefði mátt skýrar fyrir hvernig meta ætti árangur af sameiningu sviðsins. Sameining sviðsins var skoðuð sérstaklega, svo og sameining unglingadeilda í sunnanverðum Grafarvogi, sameining leikskóla, grunnskóla og frístundaheimilis í Ártúnshverfi og sameining leikskólanna Dvergasteins og Drafnarborgar. Hvað varðar sameiningu skóla eru m.a. settar fram þær ábendingar að þurft hefði að gera ráð fyrir meiri kostnaði við sameiningarverkefnin og meiri stuðningi við nýja stjórnendur.

Sjá skýrsluna í heild sinni