Mannorð, veffréttarit mannréttindaskrifstofu er komið út.
Þetta er í fjórða sinn sem mannréttindaskrifstofa gefur út rafrænt fréttablað. Í blaðinu, sem sent er út á alla starfsmenn Reykjavíkurborgar, er stiklað á stóru og kynnt það helsta sem mannréttindaskrifstofan hefur verið að gera undanfarna mánuði. Í blaðinu er til að mynda sagt frá verkefni sem nýlega fór af stað; Saman gegn heimilisofbeldi, fjallað er um verkefnið; Er Reykjavík hetero eða líka hinsegin? og birt viðtal starfsnema frá Gdansk í norður Póllandi svo eitthvað sé nefnt.