Nýtt jólatré á Austurvöll

Umhverfi Mannlíf

""
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fór í morgun og felldi jólatré í Heiðmörk sem komið verður fyrir á Austurvelli. Hitt tréð sem flutt var til landsins frá Noregi var tekið niður á mánudaginn var vegna fárviðris sem gekk yfir landið.
Eftir nánari athugun á trénu sem staðið hefur á Austurvelli í tvær vikur kom í ljós að það var illa farið af völdum veðurs. Stormurinn og mikil snjókoma höfðu gert það að verkum að greinar sveigðust af snjófargi og höfðu sumar brotnað af trénu.
 
Það var því ákveðið að ná í nýtt tré í Heiðmörk og varð afar fallegt sitkagrenitré fyrir valinu. Dagur og Khamshajiny Gunaratnam eða Kamzy, varaborgarstjóri Oslóar, völdu einmitt þetta tré þegar þau fóru í heimsókn í Heiðmörk þann 29. nóvember sl. til þess að skoða jólatré sem kæmu til greina á Austurvelli á næsta ári. Það tók því ekki langan tíma að finna nýtt tré en það er á besta aldri um 60 ára og  11,5 metrar á hæð. Fulltrúar frá norska sendiráðinu voru viðstaddir trjáfellinguna í morgun. Tréð verður flutt úr Heiðmörk í dag og verður unnið að því á morgun að koma því upp á Austurvelli og skreyta með ljóstum og jólaóróum.
 
Borgarstjóri þakkaði Helga Gíslasyni, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur og starfsfólki hans, auk starfsfólks umhverfis- og skipulagssviðs fyrir snör handtök við að bjarga jólunum og norska sendiráðinu fyrir gott samstarf í verkefninu.