Ólöf Kristín Sigurðardóttir hefur verið valin úr hópi 9 umsækjenda til að taka við stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Listasafnið er rekið í þremur húsum; Hafnarhúsinu, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni auk þess sem það ber ábyrgð á umsjón útilistaverka í eigu borgarinnar.
Frá árinu 2008 hefur Ólöf Kristín gegnt stöðu forstöðumanns Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar þar sem hún er listrænn stjórnandi og ber ábyrgð á sýningadagskrá og annarri faglegri starfsemi safnsins svo sem fræðsludagskrá, tónleikum og öðrum menningarviðburðum. Sem stjórnandi Hafnarborgar hefur hún jafnframt borið ábyrgð á stefnumótun, stjórnun, fjármálum, rekstri og allri stjórnsýslu sem varðar safnið.
Undir stjórn Ólafar hefur Hafnarborg ótvírætt markað sér sterkari sess í íslensku menningarlífi m.a. með fjölbreyttum og metnaðarfullum sýningum, fræðslustarfi, tónleikum og öðrum viðburðum sem eiga erindi við samtímann, spyrja spurninga og veita innsýn í margbreytilegan heim lista.
Ólöf var um árabil deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur; bar ábyrgð á stefnumótun, skipulagi og framkvæmd fræðslustarfs safnsins, sat í sýningarnefnd safnsins og kom þannig að því að móta sýningarstefnu þess auk þess að vera sýningarstjóri á annan tug sýninga.
Ólöf Kristín útskrifaðist frá School of the Art Institute of Chicago árið 2003 með meistaragráðu í stjórnun listasafna og sýningargerð (Arts Administration) en í því skarast þrjár fræðigreinar; menningarstjórnun, safnafræði og listfræði. Hún útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989 og hefur jafnframt lagt stund á nám í listasögu og heimspeki á Ítalíu og við Háskóla Íslands.
Samhliða stjórnunarstörfum á sviði myndlistar og menningar hefur Ólöf sinnt kennslu og ýmsum trúnaðarstörfum innan myndlistarheimsins, háskólasamfélagsins og fyrir safnamenn. Þar á meðal má nefna formennsku Íslandsdeildar ICOM – Alþjóðaráðs safna, setu í Myndlistarráði og setu í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar sem ber ábyrgð á vali fulltrúa og framkvæmd þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum.
Niðurstaða ráðningarnefndar, sem í sátu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Volta ehf. og formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík - og ráðgjafa Capacent, sem sá um ráðningarferilinn, var því að Ólöf Kristín Sigurðardóttir mæti afar vel kröfum Reykjavíkurborgar um staðgóða þekkingu á sviði safnsins, meira en 5 ára reynslu af stjórnun og rekstri, leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að leiða þetta stærsta listasafn landsins áfram á farsælli braut. Jafnframt var haft samráð við menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur sem fagnar ráðningunni.
Ráðningin er til fimm ára og tekur Ólöf Kristín við stöðunni 1. september nk. þegar Hafþór Yngvason lætur af störfum eftir 10 ára starf.