Nýmálað 1 að ljúka í Hafnarhúsi

Mannlíf Menning og listir

""

Sýningunni Nýmálað 1 lýkur í Hafnarhúsi sunnudaginn 19. apríl. Þar gefur að líta verk eftir 28 listamenn sem þeir hafa gert á síðustu tveimur árum. Sýningin er fyrri hluti sýningarinnar Nýmálað en síðari hluti hennar verður opinn á Kjarvalsstöðum þar til 7. júní þar sem 60 listamenn sýna verk sín. Það fara því að verða síðustu forvöð að sjá báða hluta sýningarinnar í Listasafni Reykjavíkur. 

Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í málaralist víða um heim. Nýjar áherslur og fjölbreytnin í málverki samtímans hefur vakið eftirtekt. Ísland er engin undantekning. Listamenn á öllum aldri, sem aðhyllast ólíkar liststefnur og hugmyndafræði, hafa valið málverkið sem sinn helsta listmiðil. Sýningarnar Nýmálað 1 og 2 í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum gefa yfirlit um stöðu málverksins á Íslandi en svo víðtæk úttekt á íslensku samtímamálverki hefur ekki verið gerð áður.



Sýningarstjórar: Hafþór Yngvason og Kristján Steingrímur Jónsson.



Listamenn á Nýmálað I:

Arnar Herbertsson, Baldvin Einarsson, Baltasar Samper, Davíð Örn Halldórsson, Einar Garibaldi Eiríksson, Guðný Kristmannsdóttir, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Helgi Þórsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Jón B.K. Ransu, Jón Henrysson, Jón Óskar, Kjartan Ólason, Kristinn Már Pálmason, Kristín Gunnlaugsdóttir, Logi Bjarnason, Magnús Helgason, Ómar Stefánsson, Pétur Halldórsson, Ragnar Kjartansson, Ragnar Þórisson, Sara og Svanhildur Vilbergsdætur, Sigtryggur Berg Sigmarsson, Sigurður Þórir, Úlfur Karlsson.