Nýir flokkabílar í þjónustu borgarinnar

Umhverfi Framkvæmdir

""

Umhverfis- og skipulagssvið fékk í gær afhenta fimm nýja stóra flokkabíla til reksturs og umhirðu borgarlandsins. Valinn hópur starfsmanna þjónustumiðstöðvar og hverfastöðva Reykjavíkurborgar mætti til Kraftvéla og veitti bílunum móttöku.

„Með tilkomu þessara bíla verða miklar breytingar á vinnuaðstöðu starfsmanna hverfastöðvanna sem starfa á þessum bílum“, segir Hjalti J. Guðmundsson stjórnandi skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins. Nýju bílarnir eru öflugri og betur tæknilega búnir en fyrirrennarar þeirra. Allir eru þeir með krana og pall sem hægt er að sturta af á þrjá vegu.  Sæti eru fyrir sjö manna öflugan vinnuflokk í hverjum bíl.

Bílarnir, sem eru af gerðinni IVECO, voru keyptir hjá Kraftvélum ehf. að undangengnu útboði Reykjavíkurborgar. Heildarverð þeirra með búnaði eru tæpar 60 milljónir.

Bílarnir verða notaðir í verkefni úti á hverfastöðvunum og hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar sem oft er kennd við aðsetur sitt á Stórhöfða. Tveir bílanna fara á hverfastöðina við Jafnasel, tveir á hverfastöðina við Njarðargötu og einn í umferðarskiltadeild á Stórhöfða.  Nýju bílarnir leysa af hólmi gömlu appelsínugulu Benz flokkabílana sem hefur verið ekið um götur borgarinnar í mörg ár.