Ný og glæsileg Borgarsýn komin út

Umhverfi Skipulagsmál

""

Borgarsýn er tímarit sem kemur út fjórum sinnum á ári og er gefið út af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. 11 tbl. er komið út og er fullt af vænlegu efni. 

Í blaðinu segir meðal annars frá vinningstillögum um Laugaveg og Óðinstorg, norrænu náttúru- og umhverfisverðlaununum sem Reykjavíkurborg fékk og könnun sem sýnir að æ fleiri borgarbúar velji að ganga og hjóla í Reykjavík. Í leiðara blaðsins er farið yfir sögu hönnunarsamkeppni á Íslandi, þar segir: Það er vilji Reykjavíkurborgar að efnt verði til hönnunarsamkeppna um sem flestar framkvæmdir á hennar vegum og er þess því að vænta að ný hönnunarsamkeppni verði auglýst von bráðar. Hægt er að skoða allar hönnunarsamþykktir sem efnt hefur verið til undanfarin misseri á vefnum hugmyndasamkeppni.is."

Í blaðinu segir frá mörgu, m.a.  yfirlit yfir helstu framkvæmdir 2014, sagt frá fundaröðinni Borgin, heimkynni okkar sem umhverfis- og skipulagssvið stendur fyrir á Kjarvalsstöðum. Næsti fundur er 10. mars og fjallar um borg náttúrunnar.

Borgarsýn er bæði prentuð og birt hér á netinu

Borgarsýn 11. tbl. 2015