Ný læsisstefna innleidd strax í haust

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum 3. júní innleiðingaráætlun um læsi, en það er yfirlýst stefna fræðsluyfirvalda að efla málþroska, lestrarfærni og lesskilning. 

Áhersla á snemmtæka íhlutun, mat og eftirfylgd með árangri í læsi

Í innleiðingaráætlun er stefnt að markvissu mati og eftirfylgd með árangri í málþroska og læsi. Markmiðið er að finna snemma þau börn sem hugsanlega geta átt í erfiðleikum með mál og lestur og veita þeim aukinn stuðning og ráðgjöf. Niðurstöðum úr HLJÓM2, sem lagt er fyrir elstu börnin í leikskólum borgarinnar, verður miðlað til grunnskólans og unnið með niðurstöðurnar þar. Auk lesskimunar að vori í 2. bekk grunnskólans er jafnframt gert ráð fyrir að skimunarprófið Leið til læsis verði lagt fyrir í öllum 1. bekkjum í sept./okt. 2015. Þá verða valdir hlutar í lesgreiningarforritinu LOGOS lagðir fyrir nemendur í 3., 6. og 8. bekk grunnskólans.

Miðstöð máls og læsis

Samkvæmt innleiðingaráætluninni verður stofnuð verkefnastjórn á skóla- og frístundasviði sem vinna mun að því að koma á fót Miðstöð máls og læsis. Hlutverk hennar verður að efla fagmennsku kennara með ráðgjöf, símenntun og stuðningi við markviss vinnubrögð með mál og læsi barna í leik- og grunnskólum og frístundastarfi. Stefnt er að því að þessi miðstöð verði opnuð í janúar 2016. Við undirbúning að stofnun miðstöðvarinnar verður m.a. litið til reynslu af sambærilegu verkefni í sveitarfélaginu Bærum nærri Ósló þar sem hlutfall innflytjenda er hátt í leik- og grunnskólum.

Læsisteymi í skólum og frístundastarfi

Innleiðingaráætluninin felur í sér að stofnuð verði læsisteymi í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi í upphafi nýs skólaárs 2015,  og að efnt verði til vinnuþings til að fá fram hugmyndir fagfólks og skapa sameiginlega sýn um læsi barna og ungmenna. Þá verða læsisáætlanir leikskóla og grunnskóla metnar en samkvæmt læsis- og lestrarstefnum ber sérhverjum skóla að setja sér slíka áætlun.

Átak í símenntun varðandi mál og læsi

Að síðustu er gert ráð fyrir átaki í símenntun faglærðra og ófaglærðra starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi um leiðir til að efla málþroska og læsi og verður leitað samstarfs við menntavísindasviðs HÍ og fleiri aðila um þá menntun.