Norræn tungumál í máli og myndum

Skóli og frístund

""
Nordens dage verða haldnir í Tungumálaveri Laugalækjarskóla 3.– 5. nóvember. Þá munu 24 nemendur í 9. bekk í norsku og sænsku taka þátt í skemmtilegu kennsluverkefni sem býður upp á lifandi netsamskipti við jafnaldra hvaðanæva á Norðurlöndum.


Nordens dage er gagnvirkt kennsluferli sem fram fer á netinu. Lögð er áhersla á gagnkvæman skilning á tungumálum Norðurlanda, sögu, menningu og náttúru landanna.
 
Verkefnið fer fram samtímis í skólum í fimm löndum; Álandseyjum, Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Svíþjóð. Nemendur nota tölvur til samskipta og sköpunar. Þeir spjalla saman, útbúa myndbönd og æfast í að skilja fjölbreytt hljómfall tungumálanna.



Nordens dage er þróað af Videncenter for Integration og fjármagnað af Nordplus og ýmsum öðrum aðilum, sveitarfélögum og sjóðum.



Verkefnin sem nemendur glíma við eru bein munnleg samskipti gegnum um Google hangouts. Einnig gera þeir myndbönd um eigin skóla og hugðarefni.



Hljóðskrár, myndir og stuttmyndir munu birtast á sameiginlegri heimasíðu, þar sem áhugasamir geta skoðað þær – www.nordensdage.nu