Norræn höfuðborgaráðstefna verður haldin í Reykjavík dagana 7. - 8. maí. Höfuðborgir Norðurlandanna hafa skipst á að halda ráðstefnuna annað hvert ár en hún var fyrst haldin í Reykjavík 2003. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er loftslagsbreytingar og aðgerðir höfuðborganna til að sporna við og aðlagast þeim. Tveir opnir fundir verða haldnir á ráðstefnunni og fara fram á ensku.
Þátttakendur á höfuðborgaráðstefnunni eru borgarstjórar, borgarfulltrúar og embættismenn frá Reykjavík, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Helsinki, Osló, Mariehamn, Nuuk og Þórshöfn. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavik, setur ráðstefnuna kl. 11 í fyrramálið.
Með ráðstefnunni er skapaður vettvangur fyrir borgarstjóra, borgarfulltrúa og embættismenn norrænu höfuðborganna til að ræða brýn málefni, skiptast á reynslu, mynda samstöðu um málefni og halda góðum tengslum. Í ár er höfuðborgaráðstefnan haldin í Reykjavík undir yfirskriftinni „Resilient Cities“.
Norrænu höfuðborgirnar hafa unnið að sjálfbærni borganna og að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Í ár er megináhersla lögð á aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og aðlögun að óumflýjanlegum afleiðingum sem munu eiga sér stað í náinni framtíð af þeirra völdum.
Á höfuðborgaráðstefnunni verða haldnir tveir opnir fundir um loftslagsbreytingar.
Sá fyrri ber yfirskriftina Konur og loftslagsbreytingar og er hluti af hátíðahöldum vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna.
Frummælendur þar verða:
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en yfirskrift erindis hennar er Hlustið á konurnar í heiminum.
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindastjórnun við Háskóla Íslands, fjallar um hvað norræn samfélög geta gert til að takmarka notkun jarðefnaeldsneytis og þar með draga úr áhrifum gróðurhúsalofttegunda.
Hrönn Egilsdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands, en yfirskrift erindis hennar er Súrnun sjávar og konur í vísindum.
Fundurinn er haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, fimmtudaginn 7. maí og hefst kl. 16.30. Fundarstjóri verður Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar. Stefnt er að því að sýna beint frá fundinum á vef borgarinnar.
Seinni fundurinn verður í Norræna húsinu, föstudaginn 8. maí kl. 9.00 og ber yfirskriftina Borgir og loftlagsbreytingar. Þar munu borgarstjórar norrænu höfuðborganna halda erindi og sitja fyrir svörum varðandi viðbrögð borganna og aðlögun að loftslagsbreytingum. Fundarstjóri verður Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari.
Báðir fundirnir fara fram á ensku.