Norðlingar fögnuðu tíu ára afmælis grunnskólans í dag en hann er nú einn stærsti skóli borgarinnar.
Mikið var um dýrðir í Norðlingaskóla á tíu ára afmælinu en skólinn er svo sannarlega hjartað í þessu barnmarga hverfi. Nýtt merki skólans var afhjúpað í tilefni þessara tímamóta og nýr og endurbættur skólasöngur fluttur. Þá var sett upp sýning í skólanum á verkum nemenda og nemendur í 5.-7. bekk fluttu söngleikinn Lion King. Til hamingju Norðlingar með stórafmælið!