Reykjavíkurborg harmar það alvarlega atvik sem varð í tengslum við ferðaþjónustu fatlaðs fólks í gær og biður hlutaðeigandi innilega afsökunar á atvikinu. Ljóst er orðið að mistökin lágu ekki aðeins hjá bílstjóra ferðaþjónustunnar heldur varð einnig misbrestur á móttöku í frístund fatlaðs fólks í Hinu Húsinu og eftirlitsskyldu þess. Auk þess er ljóst að verkferlum er ábótavant.
Í morgun var haldin fundur með fulltrúum Strætó, ÍTR, velferðarsviðs og Hafnarfjarðar þar sem farið var yfir málið.
Boðað hefur verið til sameiginlegs fundar í Ráðhúsinu kl. 12.00 í hádeginu í dag þar sem bæjarstjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu auk borgarstjóra hittast ásamt stjórn Strætó. Á dagskrá fundarins liggur fyrir tillaga sem miðar að því að gera úrbætur á ferðaþjónustu fatlaðs fólks með aðkomu hagsmunasamtaka.
- Tillagan gerir ráð fyrr því að skipuð verði sérstök neyðarstjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks undir stjórn Stefáns Eiríkssonar, sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar með aðild fulltrúa Öryrkjabandalagsins, Sjálfsbjargar og Þroskahjálpar.
- Meginhlutverk stjórnarinnar verður að tryggja örugga og eðlilega þjónustu og framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðs fólks eins fljótt og kostur er.
- Stjórnin hafi fullt umboð til að gera þær breytingar sem hún telur nauðsynlegar til að bæta úr í þjónustu og framkvæmd.
- Stjórnin hafi einnig fullt umboð til að gera tillögur um breytingar á fyrirkomulagi eða framkvæmd þjónustunnar til framtíðar.
- Farið verði í óháða úttekt á aðdraganda, innleiðingu og framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðs fólks hjá Strætó.
- Sérstök úttekt verði gerð á alvarlegu máli Ólafar Þorbjargar Pétursdóttur.
Með þessu er verið að taka undir hugmyndir sem komið hafa fram á síðustu dögum um óháða úttekt á ferðaþjónustu fatlaðs fólks og að sérstök stjórn með aðkomu hagsmunaaðila komi að málinu.