Nemendur spenntir fyrir nýjum skóla

Skóli og frístund Skipulagsmál

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var í morgun við skólaslit Dalskóla. Nemendur fóru yfir árangur vetrarins, sungu með gestum og léku á hljóðfæri.  Við lok athafnarinnar var haldið að þeim stað sem framtíðarhúsnæði skólans verður en nemendur voru búnir með aðstoð landmælingamanna að merkja fyrir skólabyggingunni.  Þar fékk borgarstjóri það vinsæla hlutverk að telja inn sumarið og slíta fimmta starfsári Dalskóla.

Hluti nemenda skólans hefur að undanförnu unnið verkefni um það hvernig þau sjá fyrir sér nýja skólann. Þau hafa átt fundi með arkitektum skólans og  verkfræðingi, hannað skólastofur, skólahúsgögn og skólalóð. Þau sýndu afrakstur vinnu sinnar við skólaslitin. Boðið var upp á mikla köku sem gerð hafði verið sem líkan af skólanum nýja.  Einnig var búið að hengja upp myndir af framtíðarskólanum utan á færanlegu kennslustofurnar sem næst eru byggingarsvæðinu og gefa þær gestum og gangandi glögga mynd af þeim byggingum sem munu rísa. Myndirnar munu hanga uppi áfram fyrir þá sem vilja kynna sér fyrirhugaða byggingu.

Fyrsta skóflustunga að nýbyggingu verður tekin í ágúst og í beinu framhaldi hefjast verklegar framkvæmdir. Fyrsti áfangi skólans verður tekinn í notkun haustið 2016.  Byggingu skólahúsnæðisins í heild lýkur 2019 en það verður tekið í notkun í þremur áföngum. Skólinn verður í fallegri tveggja hæða byggingu sem mun liggja meðfram Úlfarsbraut og mynda keðju til austurs og  tengjast menningarmiðstöð, almenningsbókasafni, sundlaug og íþróttahúsi Fram.

Dalskóli, sem er samþættur leik- og grunnskóli ásamt frístundaheimili, hefur starfað undanfarin fimm ár annars vegar í góðri leikskólabyggingu og hins vegar í lausum kennslustofum. Allt umhverfi skólans er opið og fallegt og er það vel nýtt til náms og leikja. Hornsteinar Dalskóla eru læsi, virkni og þátttaka barna, útikennsla, sköpun og listir, tónlist og söngur, gleði og metnaður.

Nánari upplýsingar um starfið í Dalskóla má finna á vefsíðunni dalskoli.is og um uppbyggingu í Úlfarsárdal er búið að draga saman upplýsingar á vefsíðuna  reykjavik.is/ulfarsardalur