Nemendamiðað skólastarf sett í forgang

Skóli og frístund

""

Tillögur starfshóps um nemendamiðað skólastarf voru kynntar á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs og var samþykkt að kostnaðargreina þær og innleiða.

Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstrigrænna og áheyrnarfulltrúa Pírata frá fundinum 24. júní segir að nemendamiðað skólastarf sé lykill að því að börn og ungmenni njóti hæfileika sinna í skóla- og frístundastarfi og hafi áhrif á innihald og skipulag starfsins. Eins sé nemendamiðað skólastarf og lýðræði samofnir þættir og mikilvægt að þróa verkefni sem miða að því í góðu þverfaglegu samstarfi fagfólks, nemenda og foreldra.

Meðal tillagna starfshópsins er að kannað verði hvort og hvernig grunnskólar framfylgja reglugerð um skólaráð og fái þann stuðning og fræðslu sem þörf sé á. Þá er lagt til að foreldrar fái virka hlutdeild í þróun nemendamiðaðs skólastarfs, s.s. með fræðslufundum og að hlustað verði á raddir nemenda og hugmyndir um nám og kennslu, t.d. með þjóðfundarfyrirkomulagi. Jafnramt er lagt til að efnt verði til námskeiða þar sem kennarar í þeim skólum sem lengst eru komnir með hugmyndafræði um nemendamiðað skólastarf, s.s. í Norðlingaskóla, deili reynslu sinni. Þema árlegrar Öskudagsráðstefnu grunnskólakennara í borginni 2016 verður jafnframt nemendamiðað skólastarf, svo og áherslur við styrkveitingar og þróunarverkefni.



Í skýrslu starfshópsins segir m.a. að hugmyndin um aukin áhrif nemenda í eigin námi og námsumhverfi hafi á síðustu árum fengið aukið vægi um allan heim og sé bæði studd lögum og fræðilegum rannsóknum. Hér á landi hafi ýmislegt þokast í átt að nemendamiðuðu skólastarfi en almennt séu skólar þó stutt á veg komnir og sóknarfærin fjölmörg. Að mati starfshópsins verður nemendamiðað skólastarf ekki innleitt í grunnskólum Reykjavíkur með stefnu eða átaki, það sé langtímaverkefni sem umfram annað krefjist hugafarsbreytinga. Hópurinn leggur til að gerð verði a.m.k. þriggja ára áætlun um eflingu nemendamiðaðs skólastarfs í grunnskólum Reykjavíkurborgar þar sem tryggður verði aðgangur að viðeigandi símenntun kennara, faglegum stuðningi og námsefni. Æskilegt sé að sérstakur verkefnastjóri eða teymi stýri innleiðingunni.

Sjá skýrslu starfshóps um nemendamiðað skólastarf.