Verkefnið PRISMA sem er á vegum Náttúruskóla Reykjavíkur hefur fengið veglegan Erasmus-styrk að jafnvirði tæplega 50.000 evra.
Prisma-verkefnið miðar að því að efla útinám í borginni og er Erasmus-styrkurinn góði til tveggja ára. Honum verður varið til náms- og þjálfunarferða leikskólakennara til Evrópu.
Hópurinn sem tekur þátt í PRISMA samanstendur af leikskólakennurum sem starfað hafa í teymi um útinám á vegum Náttúruskólans sl. þrjú ár. PRISMA miðar að því að bæta menntun leikskólakennara á sviði útikennslu, auk þess sem unnin verða útinámsverkefni fyrir leikskólabörn sem leikskólar borgarinnar fá notið góðs af.
Styrkurinn kemur í góðar þarfir og helst í hendur við nýjar áherslur í Aðalnámskrá leikskóla frá 2011 þar sem kveðið er á um menntun til sjálfbærni og útinám. Honum verður varið til þess að þróa nýjar og betri aðferðir í kennslu og nýtast við símenntun og skólaþróun.